Haustið 2014 fór af stað vinna við mótun læsisstefnu fyrir skóla á Eyjafjarðarsvæðinu. Að þeirri vinnu komu leik- og grunnskólar á svæðinu, fræðslusvið Akureyrarbæjar og Miðstöð skólaþróunar við HA.
Skipulag vinnunnar tók mið af hugmyndum um lærdómssamfélag (e. learning community) þar sem lögð var áhersla á að allir sem hlut eiga að máli kæmu að vinnunni, það er leik- og grunnskólakennarar, nemendur og foreldrar, stjórnendur, fræðslusvið og Miðstöð skólaþróunar. Sú stefna sem hér birtist er afrakstur þriggja ára samvinnu þessara aðila.
Megintilgangur læsisstefnunnar er að efla læsi í víðum skilningi og stuðla að skapandi og gagnrýninni hugsun barna.
Í læsisstefnunni Læsi er lykillinn er lögð áhersla á:
- að skólar setji fram markvissa og skýra námskrá byggða á viðmiðum aðalnámskrár,
- að skapa nemendum hvetjandi og styðjandi námsumhverfi,
- árangursríka náms- og kennsluhætti sem byggja á þörfum og áhuga nemenda,
- að námsmat sé leiðbeinandi,
- viðbragðsáætlun sem tryggir stuðning við alla nemendur.
Áhersla er lögð á náms- og kennsluhætti sem veita nemendum tækifæri til að:
- eiga samskipti, vinna með öðrum og byggja upp félagsleg tengsl,
- ígrunda og útskýra hæfni sína, nota endurgjöf sem þeir fá í námi sínu til að bæta sig og veita öðrum uppbyggjandi endurgjöf,
- vinna með og skapa fjölbreytta texta sem miðlað er á margvíslegan hátt,
- rannsaka mátt og fjölbreytileika tungumálsins, hvernig það hefur áhrif og hvernig má nota það á skapandi hátt,
- auðga orðaforða sinn með því að hlusta, tala, horfa og lesa.