Þeir bæklingar sem finna má undir krækjunum hér að neðan gefa foreldrum góð ráð um það hvernig þeir geta stutt við læsisnám barna sinn.
- Málþroski 0–3 ára
- Málþroski 3–6 ára
- Málskilningur yngsta stig grunnskóla
- Mál- og lesskilningur miðstig grunnskóla
- Bæklingar á erlendum málum
- Læsissáttmáli heimilis og skóla
Bæklingana um málþroska og mál- og lesskilning vann Skóla og frístundasvið Reykjavíkurborgar í samvinnu við borgaryfirvöld í Árósum. Þeir bæklingar hafa verið gefnir út á fjölda tungumála og má nálgast þýðingar þeirra undir krækjunni „Bæklingar á erlendum málum“.
Læsissáttmáli heimilis og skóla var gefinn út af Heimili og skóla: Landssamtökum foreldra og Mennta- og menningarmálaráðuneytinu í tengslum við þjóðarátak um læsi.